Skip to: site menu | section menu | main content


Dagskrá Krakkahesta vor/sumar 2010


ALVÖRU HESTAR Í LEIKSKÓLANN YKKAR!

Nú eru Krakkahestar komnir á kreik 12 árið í röð og hafa vinsældir þessarar heimsóknar aukist ár frá ári, og í mörgum leikskólum orðin árviss viðburður, jafnvel orðin hluti af þemavinnu, uppákoma á vorhátíð eða útskriftarferð.

DAGSKRÁIN BYRJAR Í MARS OG STENDUR FRAM Í JÚNÍ!


HESTAGLEÐI 1

Sem fyrr bjóðum við að hestarnir (Moli,Fengur og Grábrók) komi í heimsókn í leikskólann ykkar, og að sjálfsögðu er ýtrasta öryggis og hreinlætis gætt í hvívetna.
Við kynnum íslenska hestinn ásamt reiðtygum og segjum börnunum sitt lítið af hverju um samskipti manna við hestinn.
Allir fá að fara á hestbak.

Heimsóknin kostar:

  • 15-59 börn (Stærð leikskóla)......... 45.000 kr.
  • 60-99 börn (Stærð leikskóla ).............50.000 kr.
  • 100 eða fleiri börn (Stærð leikskóla).....55.000 kr.
  • Sumarhátíð................................60.000 kr


HESTAGLEÐI 2

Nú bjóðum við uppá nýjung hjá Krakkahestum :

Heimsókn í hesthúsið (tekur u.þ.b. 3 tíma).

  • Við sækjum ykkur á 32 manna rútu (passlegt fyrir eina deild, skólahóp, þemahóp osfv.)
  • Allir fá að gefa hestunum, moka, kemba og fara á hestbak.
  • Við skoðum hundaleikskóla.
  • Allir fá hressingu (hádegi/kaffi).
  • Ef þetta er í kringum páskana gæti Petra páskakanína komið ef þess er óskað.
Verð 47.000 kr. (40.000 kr. ef þið notið ekki rútuna).




Upplýsingar í síma 897 1089 (Ólafur) eða 897 2420 (Gunnhildur leikskólakennari) eða sendið tölvupóst á gunnsa@krakkahestar.is


Back to top