Skip to: site menu | section menu | main content


Starfsfólk og hestar hjá Krakkahestum


Auður Ólafsdóttir er yngsti starfsmaðurinn og jafnframt með minnstu starfsreynsluna, en það kemur ekki í veg fyrir að Auður er framúrskarandi hestastelpa (með 1.stig í knapamerkjum) og hefur verið meira og minna á hestbaki frá því hún gat setið. Auður er einnig eigandi Mola sem frekar er fjallað um hér á eftir.


Gunnhildur Viðarsdóttir er mamma Auðar og yfirleitt kölluð Gunnsa. Hún er forsprakki Krakkahesta og aðal driffjöður. Það er allt að því kaldrifjað gagnvart Gunnsu að minnast á hve mörg ár hún hefur verið í hnakknum og er því sleppt hér. Gunnsa er leikskólakennari að mennt og hefur starfað sem slík undanfarin 15 ár.


Ólafur Lúðvíksson er faðir Auðar og sambýlismaður Gunnsu. Flest allir kalla hann bara Óla ef mamma hans heyrir ekki til. Ólafur hefur mörg áhugamál en þó hefur hestamennska staðið uppúr undanfarin 12 ár. Allir sem þekkja Ólaf vita að þegar hann fæst við eitthvað er það gert með fullkomnun að leiðarljósi. Ekki skemmir það fyrir að Ólafur er annáluð barnagæla.


Moli (myndaður með Auði hér að ofan) er 19 vetra og er hesturinn hennar Auðar. Hann er undan hinum heimsfræga Sörla frá Sauðárkróki en móðurin er óþekkt. Moli er rólegur og traustur hestur sem hefur ákaflega gaman af börnum. Reynsla Mola hjá Krakkahestum er fyrirtækinu mjög mikils virði.


Fengur er 15 vetra og í eigu fjölskyldunnar. Fengur hefur þónokkra reynslu af börnum og veit fátt meira spennandi en þvælast milli leikskóla. Fengur hefur rétt heins og Moli ákaflega gaman af börnum og er mjög áreiðanlegur og traustur hestur


Back to top